Vistvæna skóspreyið frá Pure Effect er einstaklega handhægt og hentugt sprey sem eyðir táfýlu og annarri lykt, og frískar upp á skóna í leiðinni.
Skóspreyið er unnið úr náttúrulegum bakteríum sem eyða lykt og erfitt er að losna við.
Íþróttaskórnir, hjólaskórnir og aðrir tauskór frískast verulega upp við notkun spreysins enda vinnur efnið áfram við að hreinsa og eyða lykt löngu eftir notkun. Spreyið hentar einnig vel fyrir spariskóna, hælaskóna, sandalana og stígvélin og í raun allar gerðir af skótaui. Og það sem meira er, skóspreyið má líka nota á fatnað og þar sem virkni skóspreysins er meira en fataspreysins er það sérstaklega hentugt til að eyða leiðinlegri lykt úr íþróttafatnaði.
Vörurnar frá Pure Effect eru margverðlaunaðar fyrir framsýna vöruþróun og sóma sér vel hvar sem er vegna fallegrar vöruhönnunar.